Anna, stílhrein, hneppt jakkapeysa

kr.1,200

Anna stílhrein og alls ekkert flókin uppskrift, byrjað neðan frá og prjónað upp, gerð á prj  nr 5 svo ekki svo lengi prjónuð. Þessi einfalda hneppta peysa verður að uppáhaldsflík hvort heldur í vinnu eða heima við. Hún nær vel niður fyrir rass og ef þú velur mjúkt band í þínum uppáhaldslit þá verður “Anna” nýja vinkona þín.

Out of stock

Description

Efni : Aran þykkt á bandi     léttlopi, tvöfaldur plötulopi, Spuni, Drops Nepal hefur allt verið notað í þessa uppskrift. En gætið að prjónfestu!

Stærð            S        M      L        XL

Grunnlitur:   500   550   600   650 gr

Hringprjónar nr 4,5 og 5, 80 cm

Hringprjónn nr 5,  40 cm

Sokkaprjónar nr 4,5 og 5

Prjónfesta

17L x 22 á 10 cm sl. prjón á prj. nr. 5

Sannreynið alltaf prjónfestu, skiptið um prjónastærð ef þarf.

Notið fínni prjóna ef lykkjurnar eru of fáar á 10 cm en stærri ef lykkjurnar eru of margar.

Aðferð

Bolur er prjónaður fram og til baka en ermar prjónaðar í hring, byrjað er neðst á bol, ermar sameinaðar bol við handveg á einn prjón  og axlastykkið prjónað fram og til baka.

Stærðir          S       M     L      XL   

Yfirvídd         99    105   111   117 cm

Að handvegi    55     55     56     56 cm

Ermalengd       43     45     45     46  cm

Reviews

There are no reviews yet.

Be the first to review “Anna, stílhrein, hneppt jakkapeysa”

Your email address will not be published. Required fields are marked *