SILFUR, síð peysa eða stuttur prjónakjóll

kr.1,200

Glæsileg síð peysa eða kjóll, útvíð og með hringlaga berustykki. Einfalt og stílhreint mynstur, prjónuð á prjóna nr. 6 svo þetta er ekki lengi gert!

Out of stock

Description

Efni : Tvöfaldur plötulopi eða einn þráður plötulopi með einum þræði mohair sem dæmi um prjónaband í þessa uppskrift. Silfurlitt garn, t.d. heklugarn, er notað sem þriðji þráðurinn í mynstrinu með gráu á svörtum grunni. Annað prjónaband getur gengið en  gætið að prjónfestu!

Stærð          XS   S     M      L     XL

Grunnlitur:  500  550  600  650 700 gr

Mynstur: Grátt og silfrað 50-100 gr

Hringprjónar nr 4,5 og 6, 80 cm

Hringprjónn nr 6,  40 cm

Sokkaprjónar nr 4,5 og 6

Prjónfesta 

13L á 10 cm sl. prjón á prj. nr. 6

Sannreynið alltaf prjónfestu, skiptið um prjónastærð ef þarf.

Notið fínni prjóna ef lykkjurnar eru of fáar á 10 cm en stærri ef lykkjurnar eru of margar.

Aðferð

Flíkin er prjónuð í hring og byrjað neðan frá á bolnum. Ermar prjónaðar í hring og sameinaðar bol við handveg á einn prjón  og axlastykkið prjónað í hring og úrtaka eftir mynstri.

Stærðir   XS    S    M     L      XL    Yfirvídd          88    95  100   105  112 cm Sídd að                                      handvegi    48    51   55     58    60 cm

Ermalengd     42  43  44    45    46  cm

Reviews

There are no reviews yet.

Be the first to review “SILFUR, síð peysa eða stuttur prjónakjóll”

Your email address will not be published. Required fields are marked *