Description
Efni : Tvöfaldur plötulopi
Stærðir 6 8 10 12 14 ára
Grunnl. 200 200 300 350 400 gr Mynstl.1 100 100 100 100 150 gr Mynstl.2 100 100 100 100 150 gr Hringprj. Nr. 4 og 5,5 60-80 cm Sokkaprjónar nr. 4 og 5,5 Prjónfesta: 14 á 10 cm slétt prjón á prj. nr. 5,5
Sannreynið alltaf prjónfestu, skiptið um prjónastærð ef þarf. Notið fínni prjóna ef lykkjurnar eru of fáar á 10 cm en stærri ef lykkjurnar eru of margar.
Stærðir 6 8 10 12 14 ára Yfirvídd 74 80 86 92 97 cm Lengd bols 30 33 35 38 40 cm að handvegi Ermalengd 32 35 38 41 43 cm
Aðferð
Bolur og ermar eru prjónuð í hring, byrjað er neðst á bol, ermar sameinaðar bol við handveg á einn prjón og axlastykkið prjónað í hring. Upphaf umferðar á axlastykki er við samskeyti bols og ermar á bakhlið vinstra megin.
Reviews
There are no reviews yet.